Mekka Wines & Spirits

Setja þarf upp flash spilarann til að þetta svæði virki.

Leita á Mekka:
Finna gott með:
ÍsAm Virðum áfengi, drekkum í hófi

Þrúgur

Hvað er Cabernet Sauvignon?

Cabernet Sauvignon eru þrúgur sem notaðar eru til víngerðar. Smá vínber með miklum og djúpum lit, sterku/seigu hýði sem gefur tannín, fyllingu og ilm í rauðvínum frá Bordeaux sem eru þó alltaf blönduð með Merlot og /eða Cabernet Franc. Bestu víngarðar Médoc hafa allt að 80 % af Cabernet Sauvignon en í St-Emilion og Pomerol er notað Cabernet Franc. Þrúgan er nú ræktuð um allan heim og með frábærum árangri í Kaliforníu þar sem besta vínið þarf á langri þroskun að halda, og auk þess í Ástralíu, Suður-Afríku, Chile, Argentínu, Búlgaríu og fleiri löndum. Öll Cabernet vín batna við geymslu/þroskun í flöskum jafnt og í viðartunnum. Bragðið samanstendur af krækiberjum, sedrusviði, vindlakassa blýanti, papriku, mintu, dökku súkkulaði, tóbaki og ólífum.

Þrúgur