Mekka Wines & Spirits

Setja þarf upp flash spilarann til að þetta svæði virki.

Leita á Mekka:
Finna gott með:
ÍsAm Virðum áfengi, drekkum í hófi

Viskí

Hvernig er maltvískí búið til?

Bygg
Byggið er best þegar það er þungt, vel þroskað, fagurgyllt og ekki of harðkennt. Það þarf að vera mikil sterkja (sykur) í því til að gefa mikið alkóhól og hafa lítið magn af nítrógeni.

Möltun
Byggið er geymt í fersku vatni í 2-3 daga. Síðan er það þurrkað á sérstöku gólfi. Fræin eru byrjuð að stækka og senda frá sér sprota. Við það myndast hiti þannig að stöðugt þarf að snúa korninu, dag og nótt. Í flestum tilvikum er þetta í dag gert með vélarafli en áður fyrr var þetta allt gert með höndunum.

Þurrkun
Eftir um það bil viku er kornið flutt til þurrkunar. Korninu er dreift varlega á sérstakt gólf og undir gólfinu er logandi eldur sem bæði þurrkar kornið og gefur því bragð sem kemur úr reyknum. Þurrkaður mór eða tað er notað sem eldiviður og gefur það frá sér ákveðið og tignarlegt bragð.

Mölun
Kornið er hreinsað og það sett í mölun. Þegar mölun er lokið kallast kornið „grist“. Miklu máli skiptir hvernig mölunin tekst til, það má hvorki vera of fínt né of gróft. Síðan er því hellt í stóra járntanka og heitu vatni (67˚) blandað saman við. Við þetta myndast hálfgerður grautur og er hýðið af korninu sigtað frá og það notað sem kálfafóður. Það sem eftir situr er sætur vökvi.

Gerjun
Sæti vökvinn er kældur og honum dælt í stórar tréámur. Geri er bætt út í. Næstu tvo dagana étur gerið upp sykurinn í vökvanum og breytir honum í alkóhól og koldíoxíð. Þá er hitinn orðinn töluverður og vökvinn er á mikilli hreyfingu.

Eiming
Nú er vökvinn orðinn áfengur (8,5%) og hann settur varlega í sérstakan ketil. Þar sem alkóhól sýður við lægra hitastig en vatn þá breytist það fyrr í gufu. Gufan leitar upp og fer eftir löngum mjóum hálsi og hún er kæld. Við það breytist hún aftur í vökva. Þetta fer fram í stórum koparkötlum og vel er fylgst með þessu ferli. Sá vökvi sem fyrst kemur þykir ekki nægilega góður og er skilinn frá. Eftir um 15-45 mín. fer að bóla á hreinum vínananda. Eftir 2-4 klst. breytist spírinn aftur og fer að missa styrk og gæði. Þar sem maltviskí er eimað tvisvar er miðbunan send aftur til eimingar og í sama ferlið. Viskí er eimað tvisvar og í fyrra skiptið nær alkóhólmagnið 22% en í seinna skiptið fer það upp í 68%.

Geymsla
Nú er vatni blandað saman við vínandann þannig að hann er sem næst 63.5% sem er besti styrkur til að láta vínanda þroskast. Vökvanum er síðan dælt í eikartunnur. Þessar tunnur eru sjaldnast nýjar og hafa oft verið notaðar undir sérrý eða amerískt bourbon viskí. Tunnurnar hafa mikið að segja um útkomuna.

Viskíið tekur mikið bragð úr tunnunum ásamt lit. Single Malt viskí eru geymd 10-12 ár. Tunnunum er komið fyrir í vöruhúsum sem eru frekar lág steinhús með oftast náttúrulegu gólfi. Staðsetningin á þessum vöruhúsum hefur mikið að segja um bragð viskísins. Viskíið tekur í sig bragð og einkenni þess staðar sem það er geymt á. Á meðan geymslan á sér stað, andar viskíið í gegnum tunnurnar, missir alkóhólstyrk og dregur í sig staðareinkennin. Sagt er að 2% magnsins gufi upp sem eru um 45 lítrar á 10 árum! Það sem gufar upp er kallað hluti englanna.

Viskí