Opnunartímar Mekka
Vöruafgreiðsla Mekka er opin mánudaga–fimmtudaga frá 8:00–16:30 og á föstudögum frá 8:00–15:00.
Skrifstofa Mekka er opin mánudaga–fimmtudaga frá 9:00–17:00 og á föstudögum frá 9:00–15:30.
Fyrirtæki í reikningsviðskiptum geta nú gert pantanir í vefverslun Mekka og geta valið um að sækja í vörumóttöku eða fengið vörurnar sendar.
Pöntunar- og afhendingarferli
Við bendum á vefverslun Mekka til að tryggja skjóta og örugga afgreiðslu. Þær pantanir berast beint í vöruhús Mekka og fara því fyrr í tiltekt. Aukalega biðjum við viðskiptavini um að panta í fyrrihluta vikunnar svo hægt sé að afhenda vörur fyrir helgina.
Við biðjum viðskiptavini okkar um að tryggja gott aðgengi fyrir vöruafhendingu.
Dreifing er skipulögð til að tryggja skilvirkni fyrir alla. Mekka reynir eftir bestu getu að afhenda vörur eins skjótt og hægt er bæði innan höfuðborgarsvæðisins og utan þess.
Sótt í vöruhús
Afhending er á Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík – Merkt Vörumóttaka.
Vinsamlegast athugið að framvísa þarf skilríkjum og pöntunarnúmeri þegar pöntun er sótt.