Finlandia Sumar Kokteill 2019 – Top10 í úrslit

Mekka wines and Spirits þakkar keppendum kærlega fyrir þátttökuna í Finlandia sumar kokteilnum 2019. Alls tóku 30 barþjónar þátt með því að senda inn uppskriftir sem voru hver annari betri og það er óhætt að segja að Pekka Pellinen hjá FINLANDIA Vodka Global Master Mixologist og dómarateymi hans hafi átt erfitt val fyrir höndum. Það var augljóst að það var mikill metnaður  lagður í drykkina, myndirnar, lýsingar á drykkjunum og hvaðan innblásturinn í þá var sóttur. Með allt þetta í huga var valið eftir stigagjöf og valið í sitthvoru lagi. Eins var þess gætt að drykkirnir bæru ekki nafn barþjónsins til að gæta hlutleysis. Í lokin voru það stigin sem skáru út þá topp 10 barþjóna sem komust í úrslit.

En barþjónarnir eru:

Grétar Mattíhas, Grillmarkaðnum
Jóhann B. Jónasson, Eiríksson Brassarie
Tiago Jorge, Sushi Social
Daniel Kava, Sushi Social
Austumas Maliauskas, Pablo Discobar
Ísak Friðriksson, Bastard
Elísa Rún Geirdal, Sæta Svínið
Andrzej Bardzinski, Public House
Svandís Frostadóttir, Austur
Emil Þór Emilsson, Sushi Social

Dómnefnd átti mjög erfitt starf fyrir höndum enda var tæpt á milli keppanda og aðeins örfá stig skildu að þá keppendur sem komust í úrslit. Næstkomandi sunnudag mun íslensk dómnefnd smakka drykkina annaðhvort á vinnustað keppenda eða á Mekka barnum, eftir nánari samkomulagi og vonandi í lok kvölds verður sigurvegari valin.