Vetrarkokteill Finlandia

Barþjónaklúbbur Íslands, í samstarfi við Finlandia Vodka, eru að leita að Vetrarkokteil Finlandia og geta allir barþjónar tekið þátt.

Það er til mikils að vinna, en sigurvegarinn mun hljóta glæsileg ferðaverðlaun ásamt vinning í fljótandi formi!


Til að taka þátt þarftu bara að senda okkur þína uppskrift með lýsingu á íslensku og ensku á netfangið
finlandia@mekka.is. Ekki gleyma að láta fallega mynd af drykknum fylgja með.

Einu reglurnar eru þær að drykkurinn þarf að innihalda að lágmarki 3 cl af Finlandia Vodka og barinn þar sem þú starfar þarf að eiga Finlandia Vodka í hillunni. 

Við viljum þá endilega nýta þetta tækifæri og minna á fjölbreytt úrval bragðbætts vodka frá Finlandia: Lime, Cranberry, Grapefruit & Mango.
Erlend dómnefnd sem skartar Pekka Pellinen, Global Brand Mixologist fyrir Finlandia í fararbroddi velur 8 drykki sem komast í úrslit og innlend dómnefnd mun svo skera úr um sigurvegara þann 4. mars.

Taktu fram Finlandia flöskurnar þínar og leyfðu sköpunargleðinni að taka völdin!


Skilafrestur er til og með 28. febrúar.