Joseph Cartron Barþjónanámskeið


Mekka Wines & Spirits mun standa fyrir barþjónanámskeiðum þar sem Benoit de Truchis frá Joseph Cartron mun fræða okkur um sögu og sérstöðu Joseph Cartron. Joseph Cartron er framleiðandi margverðlaunaðra hágæða líkjöra sem framleiddir eru úr ferskum hráefnum og eftir hæstu gæðastöðlum.

Námskeiðin verða haldin í kjallaranum á Sæta Svíninu.
• Þriðjudaginn 20.febrúar kl.15.00-16.30
• Þriðjudaginn 20.febrúar kl.20.30-22.00

Takmarkað sætapláss, svo endilega staðfestið þátttöku á fridbjorn@mekka.is
Námskeiðin standa öllum samstarfsaðilum Mekka Wines & Spirits til boða að kostnaðarlausu.