Kokteilkeppni Tipsý og Grey Goose

Barþjónar & kokteiláhugafólk

Takið þátt  í kokteilkeppni Tipsý og Grey Goose

Þemað er franskt, túlkað á þinn eigin hátt – drykkurinn sjálfur getur verið í hvaða formi sem er.

Hver þátttakandi, sem sendir inn kokteil sem uppfyllir skilyrði innsendingar, fær 5.000 kr. gjafabréf sem gildir á Apotekið, Fjallkonuna, Sæta Svínið, Sushi Social, Tres Locos og Tapasbarinn.  Eitt gjafabréf fyrir hvern þátttakenda.

Sendu okkur þinn kokteil á keppni@tipsybar.is  fyrir 2. febrúar.

Innsending þarf að innihalda:

- Nafn á kokteil, innblástur, lýsing og mynd
- Uppskrift (sem inniheldur a.m.k. 30 ml af Grey Goose)
- Upplýsingar um þig (nafn, vinnustaður, símanúmer)
 

Forkeppni er mánudaginn 5. febrúar á Tipsý og eru valdar 12 innsendingar til að taka þátt. 

Aðalkeppnin er miðvikudaginn 7. febrúar kl. 20.00 á Tipsý og keppa 5 kokteilar til úrslita.

Í aðalvinning er 200.000 króna gjafabréf hjá PLAY og fjöldi veglegra aukavinninga er í boði. 

Það er til mikils er að vinna svo endilega takið þátt !